Laugar Spa er fyrsta flokks snyrti- og nuddstofa þar sem færstu fagmenn sjá til þess að veita gestum góða þjónustu og slökun frá amstri dagsins. Unnið er með vörum frá Guerlain og Comfort Zone en þær snyrtivörur eru þekktar um allan heim. Þær meðferðir sem í boði eru, eru samsettar af fornum fræðum og nútíma þekkingu í bland við þau gæði sem náttúran hefur að geyma.

Kæru viðskiptavinir vinsamlegast athugið að afbókanir verða að berast 12 tímum fyrir bókaða tíma að öðrum kosti áskilur Laugar Spa sér rétt til að innheimta 50% af verði meðferða. Við bókanir verður annað hvort að gefa upp kortanúmer eða númer á gjafabréfi, einnig er hægt að millifæra 50% af verði meðferðar á reikning okkar. Athugið að einungis er um tryggingu að ræða.
Opnunartímar:
Mán-Þri 09:00 - 19:00
Mið-Föst 09:00-20:00
laugardaga 10:00 - 17:00
Við bjóðum upp á falleg gjafabréf og gjafaöskjur
NÝTT - bjóðum nú upp á paranuddherbergi en þá geta pör fengið nudd í sama herbergi. Þessi þjónusta er innifalin í öllu Brúðhjónadekri en vinsamlegast takið beiðni fram við pöntun á stökum nuddtímum sem og Tyrknesku baði.
Snyrti- og nuddmeðferðir
Við minnum gesti á að taka með sér sundföt, skápar í búningsherbergjum eru ólæstir en við lánum lása fyrir staka tíma í afgreiðslu, þeir sem vilja kaupa sér veitingar í veitingastofu Baðstofunnar þurfa að muna að taka með sér veskið.
Við bendum gestum sem ætla að njóta Baðstofunnar á að koma tímanlega svo hægt sé að skanna þig inn í augnskannakerfið okkar en það auðveldar aðgengi að Baðstofu og búningherbergjum.