Heilsurækt
Bjartur og rúmgóður tækjasalur býður upp á bestu og nýjustu heilsuræktartækin frá vandaðasta framleiðanda á sínu sviði í heiminum í dag, Life Fitness og Hammer Strength. Fjölbreytnin og gæðin eru í fyrirrúmi þar sem allir í fjölskyldunni geta stundað heilsurækt við sitt hæfi. Starfsmenn eru allir fagmenntaðir á sínu sviði.
Boðið er upp á einkaþjálfun hjá færustu einkaþjálfurum landsins.
Fjölbreytt úrval námskeiða og opinna tíma eru í boði, upplýsingar um stundaskrá og verð er að finna á www.worldclass.is.
Gestir geta einnig notið þess að fara í sund þar sem aðgangur að Laugardalslauginni fylgir öllum kortum.
Áhugaverð grein í " The morning Star" 12.apríl eftir Elliot Hestar
Opnunartímar Laugum
| mánudaga til föstudaga |
06:00 - 23:30* |
| laugardaga |
08:00 - 22:00* |
| sunnudaga |
08:00 - 20:00* |
* Húsinu lokar - ath. tækjasalur lokar hálftíma fyrr.

Dansstúdíó World Class
Danskennarar í Dansstúdíóinu kenna allt það nýjasta í dansi. Þar er úrval danskennara með áralanga reynslu að baki og Stella Rósinkranz er yfirumsjónarmaður. Meðal þess sem er í boði er: Freestyle, Street, Jazzfunk, Hip Hop, Break, Jazz/Modern, Barnadansar 4 - 6 ára, Salsa og samkvæmisdansar.
Allir eiga að finna einhvað við sitt hæfi !