Nudd og dekur

Laugar Spa saltskrúbbur og heilnudd

Saltnuddið fjarlægir dauðar húðfrumur, hreinsar svitaholur, vekur háræðakerfi húðarinnar og örvar sogæðakerfið. Saltskrúbburinn (Lemongrass/Sweet amber) er einstaklega ríkur af magnesíum og hefur yfir 300 ensím sem eru líkamanum mikilvæg. Það er sérlega gott að fá nudd í framhaldi af saltmeðferð og því fylgir gott slökunarnudd í kjölfarið. Þessi meðferð gefur aukna orku og er sérlega góð við lið- og gigtarverkjum. Aðgangur að Baðstofu fylgir

75 mín · 21.990 kr.

Baðstofan fylgir

Farðu í Baðstofuna á undan eða eftir meðferðinni: fimm gufur, heitur og kaldur pottur, kaldur foss og hvíld við arineld.

Handanudd í meðferðarherbergi

Gefðu meðferðina

Gjafabréf

Gjafabréf sem gildir í þessa meðferð. Gildir í 12 mánuði og kemur samstundis í tölvupósti.

Öll gjafabréf

Í sama flokki